Enski boltinn

Sjáðu dramatíkina í Southampton

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Murray fagnar jöfnunarmarkinu.
Murray fagnar jöfnunarmarkinu. vísir/getty
Brighton nældi sér í sterkt stig í Southampton í gær en jöfnunarmarkið kom úr vítaspyrnu í uppbótartíma.

Heimamenn byrjuðu leikinn mikið betur. Pierre Höjberg kom Southampton í 1-0 fyrir hlé og Danny Ings bætt öðru marki við á 65. mínútu.

Brighton gafst ekki upp. Shane Duffy minnkaði muninn tveimur mínútum síðar og hinn ólseigi Glenn Murray jafnaði svo úr víti í uppbótartíma.

Bæði lið eru með fimm stig í ensku úrvalsdeildinni eftir leikinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×