Sport

Brady sagður hafa fengið nóg af Belichick

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Samband Brady og Belichick hefur aldrei verið verra eftir því sem segir í bókinni.
Samband Brady og Belichick hefur aldrei verið verra eftir því sem segir í bókinni. vísir/getty
Í nýrri bók um líf þjálfara New England Patriots, Bill Belichick, er því haldið fram að leikstjórnandi liðsins, Tom Brady, hafi verið nálægt því að hætta hjá félaginu fyrr á árinu þar sem hann var orðinn þreyttur á kallinum.

„Ef þú ert búinn að vera giftur sama pirraða einstaklingnum í 18 ár. Einstaklingi sem fer í taugarnar á þér og hrósar þér aldrei þá er ekki ólíklegt að þú viljir fá skilnað,“ segir einn heimildarmanna Ian O'Connor sem skrifar bókina.

Brady hefur verið með Belichick sem þjálfara allan sinn feril og eftir átök síðasta vetur var Brady orðinn verulega þreyttur á þjálfaranum að því er segir í bókinni.

„Tom veit að Bill er besti þjálfari deildarinnar en hann er búinn að fá nóg af honum. Ef Tom gæti það þá held ég að hann myndi fara,“ segir heimildarmaðurinn.

Bókin kemur út eftir viku en hún er gerð án samþykkis Belichick sem kemur ekkert sérstaklega á óvart. O'Connor ræddi við 350 manns við gerð bókarinnar og allir tengjast Patriots eða Belichick.

Seint í mars á þessu ári var Brady ekki enn búinn að ákveða hvort hann ætlaði að spila fyrir Belichick.

„Á endanum gat hann hvorki hætt eða beðið um félagaskipti þó svo hann hafi langað til þess. Er Belichick sendi Jimmy Garoppolo til 49ers þá var nánast búið að læsa Brady inni. Ef hann hefði hætt eða farið eftir það þá hefðu orðið uppþpot hjá stuðningsmönnum Patriots,“ segir í bókinni.

Búist er við að bókin muni valda nokkru fjaðrafoki og hún mun ekki gleðja Bill Belichick.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×