Fótbolti

Stuðningsmenn Real Madrid óánægðir með nýju sjöuna

Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar
Mariano með nýja númerið sitt
Mariano með nýja númerið sitt Getty
Margir stuðningsmenn Evrópumeistara Real Madrid eru óánægðir með að nýjasti leikmaður félagsins, Mariano hafi fengið sjöuna sem Cristiano Ronaldo var í áður en hann yfirgaf félagið.



Ronaldo ákvað að færa sig um set í sumar og yfirgaf hann Real Madrid og gekk til liðs við Juventus.



Er Ronaldo var hjá Manchester United var hann númer sjö, og hann hélt því áfram hjá Real Madrid.



Ronaldo er einn besti leikmaður í sögu Real Madrid, og er hann markahæsti leikmaður í sögu félagsins. Sjöan hans Ronaldo skiptir því marga stuðningsmenn miklu máli.



Þeir sömu stuðningsmenn eru því ósáttir með hver verður í sjöunni á þessu tímabili en það er Mariano sem kom frá franska félaginu Lyon.



Mariano er uppalinn hjá Real Madrid og spilaði bæði í C og B liði félagins áður en hann fór í aðalliðið. Þar spilaði hann átta leiki og skoraði eitt mark.

Á síðasta tímabili gekk hann svo til liðs við Lyon þar sem hann skoraði 18 mörk í 37 leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×