Barcelona lenti 1-0 undir en vann svo 8-2

Anton Ingi Leifsson skrifar
Börsungar fagna marki í kvöld.
Börsungar fagna marki í kvöld. Vísir/Getty
Barcelona gerði sér lítið fyrir og rótburstaði Huesca, 8-2, í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld en Barcelona er með fullt hús stiga eftir þrjá leiki.

Börsungar lentu undir á þriðju mínútu en komust svo í 3-1 fyrir leikhlé með mörkum frá Lionel Messi Luis Suarez og sjálfsmarki Jorge Pulido.

Alex Gallar minnkaði muninn fyrir Huesca fyrir leikhlé og staðan 3-2. Börsungar buðu hins vegar upp á sýningu í síðari hálfleik og skoruðu fimm mörk.

Ousmane Dembele, Ivan Rakitic, Lionel Messi, Jordi Alba og Luis Suarez skoruðu mörkin fimm í síðari hálfleik og sýning Barcelona endaði með 8-2 sigri.

Barcelona er með níu stig rétt eins og Real Madri á toppi deildarinnar. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira