Innlent

Umferðartafir vegna árekstur bíls og rútu

Birgir Olgeirsson skrifar
Einn var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík.
Einn var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík. Vísir/Vilhelm
Umferðartafir eru nú á Eyravegi við Suðurhóla á Selfossi eftir að árekstur varð með fólksbifreið og smárútu þar. Fjórir voru í rútunni en einn í fólksbílnum. Sá er með meðvitund en fluttur til Reykjavíkur á sjúkrahús. Hinir fjórir eru taldir lítið slasaðir eða ómeiddir. Vegna þessa er umferð stjórnað af lögreglumönnum á meðan vettvangur er rannsakaður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×