Giroud skoraði sigurmarkið og batt enda á 800 mínútna markaþurrð

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Loks skoraði Olivier Giroud fyrir franska landsliðið
Loks skoraði Olivier Giroud fyrir franska landsliðið vísir/getty
Frakkar unnu 2-1 sigur á Hollendingum í fyrsta heimaleik sínum eftir að þeir urðu heimsmeistarar í sumar. Liðin mættust í Þjóðadeild UEFA í kvöld.

Það tók Kylian Mbappe aðeins 14. mínútur að skora fyrsta mark leiksins en hann hafði skapað usla strax frá fyrstu mínútu leiksins.

Hollendingar ógnuðu marki Frakka lítið sem ekkert í fyrri hálfleik en færðu sig upp á skaftið í þeim seinni.

Appelsínugulir gestirnir náðu jöfnunarmarkinu á 67. mínútu þegar Ryan Babel setti fyrirgjöf Kenny Tete í netið.

Frakkar voru hins vegar búnir að jafna innan við tíu mínútum seinna. Olivier Giroud náði loks að skora eftir meira en 800 mínútur án marks fyrir franska landsliðið. Hann kom fæti framhjá Virgil van Dijk og skaut boltanum í netið.

Hollendingar reyndu að ná í jöfnunarmarkið en það kom ekki. Lokatölur 2-1.

Frakkar eru með fjögur stig í riðli 1 í A deildinni eftir tvo leiki, Þjóðverjar eitt og Hollendingar eitt eftir einn leik hvor.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira