Vætusamt næstu daga Stefán Ó. Jónsson skrifar 31. ágúst 2018 06:58 Það verður blautt á landinu næstu daga. VÍSIR/ARNÞÓR
Lægðin sem hrellti landsmenn á Suður- og Vesturlandi í gærkvöldi og nótt heldur af landi brott í dag. Hvassviðri næturinnar er því að ganga niður en áfram verður hvasst og hviðótt á norðanverðu hálendinu þar sem hviður gætu farið nærri 40 m/s og er gul viðvörun í gildi þar til kl. 12. Eins og vill gerast með skil fylgir þeim væta, en víða má búast við úrkomu í dag, einkum sunnan- og suðaustantil þar sem stefnir í talsverða rigningu fram yfir hádegi. Hitinn í dag verður á bilinu 9 til 16 stig. Veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands segir að í kjölfar skilanna komi suðvestlæg átt og skúrir um landið sunnan- og vestanvert en undir kvöld ætti að létta til norðaustanlands. Það stefnir svo í stífa suðvestanátt með skúrum á morgun. Þó verður bjart norðaustanlands en á sunnudaginn á búast við vestlægri átt. Áfram verður væta um allt vestanvert landið. Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ laugardag:Suðvestlæg átt, víða 10-15 m/s, og rigning eða skúrir, en bjartviðri NA- og A-til. Hiti 7 til 14 stig, hlýjast á A-landi. Á sunnudag:Vestan strekkingur S-lands, annars hægari. Væta um landið vestanvert, en bjartviðri að mestu A-lands. Hiti 7 til 12 stig. Á mánudag:Suðlæg átt og fer að rigna S- og V-lands þegar líður á daginn, en úrkomulítið í öðrum landshlutum. Hiti breytist lítið. Á þriðjudag:Suðvestlæg átt og væta með köflum, en úrkomulítið NA-til. Hiti 7 til 13 stig. Á miðvikudag:Norðlæg eða breytileg átt og skýjað en úrkomulítið fyrir norðan og kólnar í veðri. Rofar til sunnan heiða og hiti 8 til 13 stig. Á fimmtudag:Útlit fyrir suðlæga átt með rigningu víða, einkum V-lands, og hlýnar í veðri.
Veður Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Innlent Fleiri fréttir Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Sjá meira