Fótbolti

Hannes og félagar fara á Emirates

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Hannes varði víti frá Messi í sumar, hann ætti því ekki að óttast stjörnur Arsenal í vetur
Hannes varði víti frá Messi í sumar, hann ætti því ekki að óttast stjörnur Arsenal í vetur vísir/getty
Hannes Þór Halldórsson og félagar í Qarabag mæta Arsenal í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Dregið var í riðla í dag.

Qarabag vann Valsbanana í Sheriff í umspilinu og komst í þannig í riðlakeppnina. Þar lenti liðið í riðli með Arsenal, Sporting og Vorskla frá Úkraínu.

Chelsea er í riðli með PAOK, Bate Borisov og Vidi frá Ungverjalandi. Lærisveinar Steven Gerrard í Rangers mæta Villareal og Spartak Moskvu.

Alls eru fimm önnur Íslendingalið í riðlakeppninni. Íslendingaslagur verður í I riðli þar sem Sarpsborg og Malmö mætast. Rosenborg er í erfiðum riðli með Celtic, Salzburg og Leipzig. Zürich mætir Bayer Leverkusen á meðan Krasnodar lenti í riðli með Sevilla.

Riðlakeppnin fer af stað 20. september og úrslitaleikurinn fer síðan fram á Ólympíuleikvanginum í Bakú 29. maí 2019.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×