Innlent

Týndu börnin í verra ástandi en áður

Sveinn Arnarsson skrifar
Guðmundur Fylkisson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Guðmundur Fylkisson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Vísir/Andri Marinó
Oftar hefur verið óskað eftir liðsinni lögreglu í ár en í fyrra við að hafa uppi á týndum ungmennum. Að mati sérfræðings hjá lögreglunni eru mörg þeirra í verra ástandi en áður og þurfa á neyðarvistun á Stuðlum að halda í ríkari mæli. Hann segir eitthvað að í kerfinu.



Það stefnir í metár í leit að týndum ungmennum að mati Guðmundar Fylkissonar lögreglufulltrúa. Ungmennin eru í verra ástandi en áður hefur þekkst og fleiri börn fara beint í neyðarvistun á Stuðlum eftir að þau koma í leitirnar.

„Við erum búin að fá fleiri tilkynningar um týnd ungmenni nú en á sama tíma í fyrra. Það sem er líka breytt er að hlutfallslega eru fleiri börn að fara beint á neyðarvistun á Stuðlum en hér áður fyrr. Í fyrra fór um eitt barn á Stuðla fyrir hver tvö börn sem fóru beint heim en nú er hlutfallið að nálgast 50 prósent sem fer á Stuðla,“ segir Guðmundur. „Við erum að finna þau í verra ástandi en áður. Það vantar úrræði fyrir þau ungmenni sem eru verst sett. Það er eitthvað sem er ekki alveg að virka í kerfinu fyrir ákveðinn hóp.“

Arna Sif Jónsdóttir, stjórnarmaður í Olnbogabörnum, tekur undir að meðferðarúrræði fyrir ungmenni í dag séu ekki góð. „Að okkar mati er gripið allt of seint inn í og svo vantar samfellu í meðferðina. Einnig er ekki hægt að koma ungmennum að í geðlækningum ef þau eru komin í smá fikt, þá er bara lokað og vísað á meðferðir,“ segir Arna Sif. „Ég upplifði sjálf á sínum tíma líkt og þetta væri ákveðinn fórnarkostnaður sem ríkinu fannst ásættanlegur.“

Guðmundur segir að ungmennin tjái þeim oft að auðvelt sé að nálgast læknadóp.

„Í spjalli við þau finnur maður að þau eru í læknadópi og eiga auðvelt með að nálgast það.“ 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×