Ökumenn geta leitað réttar síns vegna skemmda á Suðurlandsvegi Kristín Ýr Gunnarsdóttir skrifar 22. ágúst 2018 21:00
Nokkrir hafa fyllt út tjónaskýrslu og aðrir hringt í Vegagerðina vegna tjóns á bílum sem rekja má til ónýtra vegkafla austan við Vík í Mýrdal á Suðurlandsvegi við Landvegamót. Í fréttum okkar í gær sögðum við frá því að nokkra kílómetra vegakaflar fyrir austan Vík í Mýrdal og á Suðurlandsvegi við Landvegamót eru ónýtir eftir að slitlag var sett á þá um helgina. Málið er til rannsóknar hjá Vegagerðinni en í samtali við Vísi í dag sagði framkvæmdastjóri félags íslenskra bifreiðaeigenda ákvæði vera í vegalögum þar sem segir að ef um vangá vegahaldara er að ræða þá geti það skapað bótaábyrgð. Ökumenn sem telji sig hafa orðið fyrir tjóni geti því átt rétt á bótakröfu á Vegagerðina. G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir sex manns hafa fyllt út tjónaskýrslur í dag og nokkur símtöl hafi komið til þeirra. Hann segir málið enn í rannsókn en tjónið er metið á 15 til 20 milljónir króna. „Aftur á móti vitum við ekki ennþá hver ber ábyrgð á þessu. Við þurfum að komast að því hvað gerðist og hver ber ábyrgðina,“ segir hann um málið. Mikið grjótkast var á þessum vegaköflum og hefur umferðarhraði verið tekinn niður. Grjótkastið getur orðið til þess að skemmdir verða á ökutækjum. En hvað með þá sem hafa orðið fyrir tjóni, hvað eiga þeir að gera? „Á heimasíðunni hjá okkur er hægt að fylla út tjónsskýrslu. Það er ráðlagt að gera það, þó að það komi síðan í ljós að vegagerðin beri ekki ábyrgðina þá er sniðugt að byrja þar,“ segir hann.
Mest lesið Forsetavaktin: Halla Tómasdóttir kjörin forseti Innlent Fólk hafi kosið taktískt gegn Katrínu Innlent Var nálægt því að draga framboð sitt til baka Innlent Veit ekki hvað tekur við en byrjar á kaffibolla Innlent Eiríkur Ingi nýr handhafi mets sem enginn vill eiga Innlent Batt á sig klút til heiðurs Höllu Innlent Hópur ungmenna réðst á starfsmann veitingastaðar Innlent Björn lagði línuna og kjósendur svöruðu kallinu Innlent „Sigur MBA-gráðunnar, leiðtogafræða og mannauðsstjórnunar“ Innlent Ávarpar stuðningsmenn af svölunum Innlent Fleiri fréttir Niðurstöður talningar: Kjörsókn með besta móti Fyrsti karlmakinn á Bessastöðum: „Draumaútkoman varð að veruleika” Neðstu sex fengu samanlagt rúm þrjú þúsund atkvæði Dauðþreyttur Jón eyddi átta milljónum króna Ávarpar stuðningsmenn af svölunum Könnun Maskínu daginn fyrir kjördag staðfesti flugið á Höllu Tómasdóttur Halla Hrund með hjartað fullt af þakklæti Aukafréttatími Stöðvar 2 Var nálægt því að draga framboð sitt til baka Fólk streymir í Bláa lónið á ný og sér eldgosið vel „Sigur MBA-gráðunnar, leiðtogafræða og mannauðsstjórnunar“ Björn lagði línuna og kjósendur svöruðu kallinu Veit ekki hvað tekur við en byrjar á kaffibolla Stöðugt hraunflæði til tveggja átta Eiríkur Ingi nýr handhafi mets sem enginn vill eiga Kosningarnar gerðar upp Hópur ungmenna réðst á starfsmann veitingastaðar Batt á sig klút til heiðurs Höllu Fólk hafi kosið taktískt gegn Katrínu Augljóst að kjósendur vilja konu sem næsta forseta Segir allt stefna í að Halla Tómasdóttir verði forseti Fyrstu tölur úr Suðvesturkjördæmi: Minnsti munurinn á Höllu og Katrínu hingað til Katrín ávarpaði stuðningsmenn: „Ég sé ekki eftir þessu“ Telur fylgið hafa farið á dreifingu vegna fjölda frambjóðenda Fyrstu tölur úr Norðvesturkjördæmi: Halla Tómasdóttir efst Fyrstu tölur úr Reykjavík norður: Halla Tómasdóttir er efst Katrín sér ekki eftir framboði sínu Fyrstu tölur úr Reykjavík suður: Halla Tómasdóttir með flest atkvæði Telur taktíska kosningu hafa unnið gegn sér Segir klútabyltinguna vera hafna Sjá meira