Lífið

Kom konunni á óvart með sérhönnuðum sundbol

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þessi sló ekki beint í gegn.
Þessi sló ekki beint í gegn.
Par sem heldur úti Facebook-síðu þar sem birtast skemmtileg myndband frá þeirra lífi slógu í gegn á vefnum á dögunum.

Á síðu þeirra birtist nokkuð spaugilegt myndband. Saman voru þau á leiðinni í frí á sólaströnd og eiginkonan hafði eðlilega pakkað niður bikiní.

Maðurinn tók aftur á móti upp á því að panta sérútbúinn sundbol og henti sundfatnaði hennar í ruslið.

Sundbolurinn var vægast sagt sérstakur en búið var að prenta andlit mannsins framan á flíkina og afturendann á honum að aftan.

Það tók smá tíma að sannfæra konuna um að máta sundbolinn, en það hafðist að lokum eins og sjá má hér að neðan.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×