Innlent

Suðurlandsvegur malbikaður í dag og á morgun

Bergþór Másson skrifar
Suðurlandsvegur.
Suðurlandsvegur. Mynd úr safni
Báðar akreinar til vesturs á Suðurlandsvegi verða malbikaðar í dag, og á morgun verða báðar akreinarnar til austurs malbikaðar.

Akreinarnar til vesturs, milli vegamóta við Þrengslaveg og Litlu kaffistofunnar verður lokað vegna malbikunarinnar og umferð færð yfir á öfugan vegahelming.

Akreinarnar til austurs milli vegamóta við Hellisheiðavirkjun og Skíðaskála verður lokað vegna malbikunarinnar og umferð beint um Þrengslaveg.

Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir frá klukkan 7:00 til 00:00 báða daganna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×