Innlent

Fékk nafni sínu breytt án vandræða í gögnum Kvennaskólans: „Rosalega mikill léttir“

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Jafnréttisfulltrúi Kvennaskólans í Reykjavík segir það lítið mál að breyta nafni nemenda í nafnaskrá skólans. Mikilvægt sé að skólinn létti undir með nemendum sem standa í kynleiðréttingarferli.

Í vikunni fjölluðum við um nemenda Menntaskólans við Sund sem stendur í kynleiðréttingarferli en fær ekki að heita nýju nafni sínu í gögnum skólans. Hann segir þungbært að vera sífellt kallaður kvenmannsnafni þegar hann líti á sig sem karlmann. Að hans sögn neiti skólastjóri skólans að breyta nafni hans í gögnum á meðan hann bíði eftir að Þjóðskrá taki nafnabreytingu hans gildri.

Önnur er saga Ólivers Elís, sem stundar nám við Kvennaskólann í Reykjavík. Hann kom út sem transmaður árið 2017 og fékk nafni sínu breytt í gögnum skólans um leið og óskað var eftir því.

„Mjög fljótlega eftir að ég kom út sendi mamma tölvupóst á skrifstofu skólans, þar sem ég var ekki orðinn 18 ára á þeim tíma. Sama dag var þetta komið inn í kerfið þar. Þetta var alls ekkert vandamál og voru allir tilbúnir að hjálpa strax og eru enn allir tilbúnir að hjálpa mér í öllu,“ segir Óliver Elí Jónsson, nemandi við Kvennaskólann í Reykjavík.

Ólíver Elí JónssonBaldur Hrafnkell Jónsson
Þá segir jafnréttisfulltrúi Kvennaskólans að um einfalt verk sé að ræða sem taki nokkrar mínútur með hjálp tölvu, enda sé það í fyrirrúmi að nemandi sé ekki minntur á fyrra kyn.

Óliver segir það mikinn létti að rétt nafn sé skráð í gögn skólans.

„Það er rosalega mikill léttir að geta mætt í skólann og vitandi að það er enginn að fara að ruglast neitt. Gögnin eru bara beint fyrir framan þau og því geta þau ekki notað neitt annað,“ sagði Óliver Elí.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×