Fótbolti

Leikur Vals og Sheriff í beinni á Stöð 2 Sport

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Valsmenn fagna marki á Hlíðarenda
Valsmenn fagna marki á Hlíðarenda vísir/bára
Íslandsmeistarar Vals taka á móti moldóvska liðinu Sheriff í seinni leik liðanna í forkeppni Evrópudeildar UEFA annað kvöld.

Valur tapaði fyrri leiknum 0-1 ytra þar sem Ziguy Badibanga skoraði sigurmarkið á 85. mínútu. Valsliðið á því enn góða möguleika á því að fara áfram í umspil um sæti í riðlakeppninni með góðum leik á morgun.

Leikur Vals og Sheriff verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 annað kvöld og hefst útsendingin klukkan 18:50.

Nái Valur að komast áfram bíður Hannes Þór Halldórsson og lið hans Qarabag í umspilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×