Innlent

Rán býður sig fram til formanns Neytendasamtakanna

Kjartan Kjartansson skrifar
Rán Reynisdóttir er ritari Félags hársnyrtisveina. Hún sækist eftir embætti formanns Neytendasamtakanna.
Rán Reynisdóttir er ritari Félags hársnyrtisveina. Hún sækist eftir embætti formanns Neytendasamtakanna. Aðsend mynd
Sex hafa nú tilkynnt um framboð til formanns Neytendasamtakanna. Rán Reynisdóttir, hársnyrtimeistari, sendi frá sér tilkynningu í dag þar sem hún lýsti yfir framboði sínu. Segist hún með því verða við áskorun hóps fólks sem vill vinna að eflingu samtakanna og hagsmunagæslu almennings.

Í tilkynningunni kemur fram að Rán sé ritari Félags hársnyrtisveina og hafi nýverið lokið námi til kennsluréttinda í iðnnámi. Hún sé einstæð móðir fjögurra barna á aldrinum tveggja mánaða til átta ára og hafi reynslu af því að reka „þungt heimili“.

Rán segir markmið hópsins að vinna á næstu vikum áætlun til eflingar Neytendasamtakanna. Það liggi fyrir að vilji sé innan verkalýðshreyfingarinnar að efla hagsmunagæslu almennings og því sé mikilvægt að tengja Neytendasamtökin við þá vakningu. Þá sé einnig mikilvægt að efla félagslegt starf Neytendasamtakanna og efna til öflugrar umræðu svo hægt sé að endurnýja stefnu og markmið samtakanna.

Fimm aðrir hafa lýst framboði til embættisins, þau Breki Karlsson forstöðumaður Stofnunar um fjármálalæsi, Guðjón Sigurbjartsson viðskiptafræðingur, Guðmundur Hörður Guðmundsson, fyrrverandi formaður Landverndar, Jakob S. Jónsson leiðsögumaður og leikstjóri, og Ásthildur Lóa Þórsdóttir, kennari og formaður Hagsmunasamtaka heimilanna.


Tengdar fréttir

Ásthildur Lóa vill leiða Neytendasamtökin

Ásthildur Lóa Þórsdóttir, kennari og formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, hefur tilkynnt að hún bjóði sig fram í embætti formanns Neytendasamtakanna.

Guðjón sækist eftir formennsku í Neytendasamtökunum

Viðskiptafræðingurinn Guðjón Sigurbjartsson hefur ákveðið að bjóða sig fram til formennsku í Neytendasamtökunum. Nýr formaður verður kjörinn á þingi samtakanna 27. október næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×