Innlent

„Þið eruð að fara með mig eins og fokking blökkumann!“

Gunnar Hrafn Jónsson skrifar
Epstein var allt annað en sáttur við framgöngu lögreglunnar.
Epstein var allt annað en sáttur við framgöngu lögreglunnar. Twitter/Blédakiss
Jeffrey Epstein, 59 ára læknir frá Flórída, segist hafa orðið fyrir lögregluofbeldi þegar hann var handtekinn á Orlando flugvelli í gær og myndband af upptökunni fer eins og eldur í sinu um netheima.

Það sem helst vekur athygli er að Epstein hrópar upp yfir sig að hann óttist að vera barinn af lögreglunni og segist síðan vera að fá sömu meðferð og blökkumaður eftir að þrír lögreglumenn snúa hann niður.

Í samtali við bandaríska fjölmiðla segist Epstein hafa verið að reyna að koma því til skila að ef hann fengi slíka meðferð sem hvítur karlmaður um sextugt mætti búast við því að sömu lögreglumenn myndu beita blökkumenn ennþá meira ofbeldi.

Atvikið átti sér stað klukkan sex um morguninn eftir að starfsmenn flugvallarins tilkynntu lögreglu að óður maður gengi laus í flugstöðinni og öskraði hástöfum. Þegar lögreglu bar að garði virtist Epstein róast en þegar honum var sagt að hann fengi ekki að stíga um borð í flugvél eftir ólætin virtist hann sturlast að sögn viðstaddra. Hann var snúinn niður, handjárnaður og úðaður með piparúða áður en hann var færður í fangageymslu.

Epstein var ekki mjög brattur eftir piparúðann og átökin við lögreglu.Orlando Police Department
Epstein reyndist vera með lítinn poka af kannabis í fórum sínum. Hann mun hafa sagt lögreglu að allt hafi þetta verið með ráðum gert til að sýna fram á að lögregluofbeldi þrifist víða í Bandaríkjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×