Enski boltinn

Sjáðu öll 17 mörkin úr enska boltanum í gær

Arnar Geir Halldórsson skrifar
17 mörk í 6 leikjum
17 mörk í 6 leikjum Vísir
Það var mikið um dýrðir þegar 2.umferð ensku úrvalsdeildarinnar hófst í gær með sex leikjum sem flestir áttu það sameiginlegt að vera mjög fjörugir.

Dagurinn hófst reyndar með markalausu jafntefli nýliða Cardiff og Newcastle þar sem rautt spjald fór á loft og vítaspyrna fór í súginn.

Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Everton léku á als oddi og unnu verðskuldaðan 2-1 sigur á Southampton á meðan Tottenham vann nokkuð öruggan sigur á Fulham í Lundúnarslag.

Stærsti Lundúnarslagur dagsins var hins vegar síðdegis þar sem Arsenal heimsótti Chelsea og úr varð frábær knattspyrnuleikur.

Öll mörk gærdagsins má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Everton hafði betur gegn Southampton

Gylfi Þór Sigurðsson spilaði allan leikinn fyrir Everton sem vann 2-1 sigur á Southampton í annarri umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×