
Hagkvæmara húsnæði
Húsnæðisvandinn í Reykjavík hefur orðið til þess að margir flytja í önnur sveitarfélög. Reykjanesbær og Árborg vaxa. Ungt fólk sem vill halda tryggð við hverfið sitt býr í meiri mæli enn í foreldrahúsum. Og svo hefur sá hópur vaxið hraðast sem hefur ekkert heimili; heimilislausir eru nú tvöfalt fleiri í Reykjavík en fyrir nokkrum árum síðan. Hvað veldur? Margt bendir til að vandinn sé heimatilbúinn.
Skortur á hagkvæmum lóðum í Reykjavík, há byggingarréttargjöld og þungt stjórnkerfi hefur hækkað verð á íbúðum í borginni. Sjálfstæðismenn í borgarstjórn hafa lagt fram tillögur til úrbóta. Á fyrsta fundi borgarstjórnar eftir kosningarnar lögðum við til að breytt væri skipulagi borgarinnar. Íbúðir væru leyfðar í Örfirisey, BSÍ reit, Keldum og Úlfarsárdal.
Breytum kerfinu
Bent hefur verið á að Reykjavík sé frekar dreifbýl borg. Það ætti því að vera tiltölulega ódýrt að þétta borgina. Sú leið að byggja nær eingöngu í grónum hverfum er hins vegar dýr. Með því að fara þá leið sem við höfum boðað myndi Reykjavík geta verið raunhæfur valkostur fyrir íbúðakaupendur. Og leigjendur. Annað sem við höfum lagt til er að byggingarréttargjaldi sé stillt í hóf.Þriðja atriðið er að kerfið verði einfaldara og skilvirkara. Með þessum þremur atriðum má lækka kostnað mikið, en talið er að eiginlegur byggingarkostnaður sé ekki nema rúmlega helmingur kostnaðarins. Hátt í helmingur fer í byggingarréttinn, hönnun, tafir samkvæmt tölum frá Samtökum Iðnaðarins. Rót vandans þarf að leysa. Samhliða þarf að fara í neyðarúrræði fyrir þá sem eru heimilislausir. Vandi þeirra er vandi okkar allra.
Höfundur er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjvík
Skoðun

Svar við opnu bréfi Yair Sapir
Hjálmtýr Heiðdal skrifar

Hver er besti vinur fjármálaráðherra?
Þórir Garðarsson skrifar

Lífskjarabati síðustu ár með fádæmum - árangur Þjóðarsáttarinnar
Kristinn H. Gunnarsson skrifar

Til ritstjóra DV
Ívar Halldórsson skrifar

Taktleysi
Hörður Ægisson skrifar

Tímafrekur forstjóri
Þórlindur Kjartansson skrifar

Stúdentspróf í tölvuleikjagerð
Lilja Alfreðsdóttir skrifar

Til varnar femínisma
Jón Baldvin Hannibalsson skrifar

Krabbameinsvaldandi efni
Teitur Guðmundsson skrifar

Leyndarhjúpur laskar traust til lífeyrissjóða
Hallgrímur Óskarsson skrifar

Múrinn um matarkörfuna
Þorbjörg Gunnlaugsdóttir skrifar

Almenningssamgöngur fyrir allt landið
Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar

Bíðum með bankana
Þorvaldur Gylfason skrifar

Meira og betra er líka dýrara
Áslaug Hulda Jónsdóttir skrifar

Kæru ráðherrar og alþingismenn Vinstri grænna
Ole Anton Bieltvedt skrifar