Enski boltinn

Rafa Benitez talar til eigandans í gegnum fjölmiðla

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Rafa Benitez.
Rafa Benitez. Vísir/Getty
Rafa Benitez, knattspyrnustjóri Newcastle United, er ekki bjartsýnn á tímabilið ef marka má nýjasta viðtalið við hann í enskum fjölmiðlum.

Newcastle United tapaði 4-0 á móti portúgalska félaginu Braga í næstsíðasta undirbúningsleik sínum fyrir tímabilið og nýjasta útspil spænska knattspyrnustjórans er að reyna að setja á pressu á eiganda félagsins Mike Ashley í gegnum fjölmiðla.

„Það gengur ekki vel hjá okkur utan vallarins og það má sjá spegilmynd af því inná vellinum,“ sagði Rafa Benitez við BBC. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Benitez reynir að setja pressu á Mike Ashley með þessum hætti.

Benitez telur sig þurfa að styrkja liðið sitt meira fyrir tímabilið en liðið endaði í 10. sæti í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

Newcastle fékk slóvakíska markvörðurinn Martin Dúbravka frá Sparta Prag fyrir fjórar milljónir punda og svissneska varnarmanninn Fabian Schär frá Deportivo La Coruna fyrir þrjár milljónir puna. Þá kom kóresku miðjumaðurinn Ki Sung-yueng frá Swansea City á frjálsri sölu.

Newcastle hefur aftur á móti selt leikmenn fyrir 42 milljónir punda eins og framherjann Aleksandar Mitrovic til Fulham fyrir 22 milljónir punda og miðjumanninn Mikel Merino til Real Sociedad fyrir tíu milljónir punda.

„Við sjáum að liðin sem eru að koma upp hafa eytt miklum peningum í leikmenn. Þegar við tökum þá staðreynd inn í myndina þá ættu allir að skilja af hverju við þurfum að hafa áhyggjur af komandi tímabili,“ sagði Rafa Benitez.

Fyrsti leikur Newcastle United á tímabilinu er á móti Tottenham og fer hann fram eftir níu daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×