Enski boltinn

„Alisson er í heimsklassa“

Anton Ingi Leifsson skrifar
Alisson sprækur á æfingum í vikunni.
Alisson sprækur á æfingum í vikunni. vísir/getty
Asmir Begovic, markvörður Bournemouth, segir að nýjasti markvörður Liverpool, Alisson sé í heimsklassa. Alisson kostaði skildinginn og segir Begovic að það eigi eftir að skila sér.

Jurgen Klopp staðfesti í gær að Alisson myndi spila sinn fyrsta leik gegn Napoli á laugardaginn en hann gekk í raðir Liverpool frá Roma í sumar eftir að hafa spilað með Brasilíu á HM.

„Ég held að markverðir séu mikilvægir í öllum liðum. Við spilum hlutverk og erum með mikilvægi. Alisson er heimsklassamarkvörður,” sagði Begovic sem dró ekkert úr því.

„Markvörður sem er með alhliða er mikilvægur. Það er það sem stjórar og félögin leita eftir - að vera eins fullkominn og hægt er, að vera með eins marga hæfileika og hægt er.”




Fleiri fréttir

Sjá meira


×