Innlent

Næststærsta Skaftárhlaup sögunnar hefur truflað vegasamgöngur

Sveinn Arnarsson skrifar
Brú yfir Skaftárdalsveg er vegtengingarlaus. Vatnamælingahúsið við enda brúarinnar er smágert í samanburði við ofsann í hlaupinu.
Brú yfir Skaftárdalsveg er vegtengingarlaus. Vatnamælingahúsið við enda brúarinnar er smágert í samanburði við ofsann í hlaupinu. Benedikt G. Ófeigsson

„Þetta er næststærsta hlaup sem komið hefur úr Skaftárkötlum,“ segir Gunnar Sigurðsson, hópstjóri vatnamælikerfa hjá Veðurstofu Íslands.

Skaftárhlaup sem hófst á föstudag er nú í rénun. Þjóðvegi 1 var lokað á sunnudagsmorgun eftir að vatn flæddi yfir hann. Búist er við að hann verði opnaður aftur í dag.

„Hér áður fyrr var venjan að ekki liðu lengur en tvö ár milli hlaupa en nú liðu þrjú ár og þar á undan liðu fimm ár. Það útskýrir að miklu leyti stærð síðustu tveggja hlaupa,“ segir Gunnar.

Auður Guðbjörnsdóttir, bóndi á Búlandi í Skaftártungum, segir þau hjón vita hvað bíði þeirra þegar austari ketillinn í Skaftárjökli lætur kræla á sér.

„Veginum er lokað hjá okkur og svo gerum við ráðstafanir með búfé. Fé frá mér kemst á eyju vestan megin við brúna inn á Skaftárdal og því þurfum við að smala það. Annars verður féð innlyksa. Við höfum um sólarhring til þess,“ segir Auður. 


Tengdar fréttir

Gríðarmikið vatn hefur flætt yfir Suðurlandsveg

Gríðarmikið vatn úr Skaftárhlaupi hefur flætt yfir Suðurlandsveg vestan við Holtsveg og Kirkjubæjarklaustur frá því í morgun og hefur vegurinn verið lokaður í allan dag. Yfirverkstjóri hjá Vegagerðinni segir þetta vera alveg nýja stöðu í Skaftárhlaupi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×