Enski boltinn

Gylfi spilar á miðjunni í vetur: „Síðasta tímabil var ekki eðlilegt“

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson á von á betra tímabili á Goodison Park
Gylfi Þór Sigurðsson á von á betra tímabili á Goodison Park Vísir/Getty
Gylfi Þór Sigurðsson varð dýrasti leikmaður í sögu Everton þegar hann var keyptur til félagsins fyrir 45 milljónir punda síðasta sumar. Hann átti nokkuð erfitt uppdráttar á sínu fyrsta tímabili en undir stjórn nýs knattspyrnustjóra sér Gylfi fram á betri tíma.

Síðasta tímabil var erfitt hjá öllu Everton liðinu ekki bara Gylfa. Þrír mismunandi knattspyrnustjórar voru við stjórnina og leikmönnunum gekk illa að spila saman sem lið.

Gylfi var í löngu viðtali við Liverpool Echo þar sem hann talaði um síðasta tímabil og það sem er fram undan.

„Síðasta tímabil var ekki eðlilegt ár hjá fótboltafélagi. Það var mikið um breytingar og hver stjóri kom inn með nýjar hugmyndir og leikstíl,“ sagði Gylfi í viðtalinu.

Gylfi spilaði alla þrjá leiki Íslands á HM í Rússlandivísir/getty
„Margir leikmannanna eru reyndir fótboltamenn og þekkja það að skipta um stjóra. En það er samt þannig að þegar nýr stjóri kemur inn þarft þú að aðlagast og spila öðruvísi en þú ert vanur. En við erum með mjög góðan stjóra sem mun ná góðum árangri með okkur.“

Marco Silva tók við Everton í sumar. Forráðamenn Everton vildu fá hann síðasta vetur þegar Ronald Koeman var rekinn en Watford vildi ekki láta hann fara. Everton hefur ekki gengið neitt sérstaklega vel í vináttuleikjum í sumar en Gylfi hefur ekki áhyggjur af því.

„Við erum að einbeita okkur að því að bæta okkur og sjá til þess að við verðum tilbúnir í fyrsta leikinn. Við viljum byrja vel en höfum lagt áherslu á taktík og líkamlegt þol á æfingum. Æfingar hafa gengið vel og flestir strákarnir eru tilbúnir í slaginn.“

„Hann [Silva] hefur komið með mikið af nýjum hlutum á stuttum tíma. Ég kom aftur fyrir nokkrum vikum en á þeim tíma hefur hann komið með mikið nýtt inn. Hann er líka að reyna að sjá til þess að við njótum þess að spila, við pressum andstæðinginn, leggjum okkur fram og séum skipulagðir varnarlega.“

„Við höfum ekki fengið mikið af mörkum á okkur þar sem lið spila sig í gegnum okkur, þau koma frekar eftir kjánaleg mistök sem við reynum að vinna í.“

Á síðasta tímabili þurfti Gylfi að berjast við Wayne Rooney um hina svokölluðu tíu í leikskipulaginu, holuna sem Gylfa líður best í. Hann var mikið notaður út úr stöðu og hafði það áhrif á frammistöðu hans. Rooney er hins vegar farinn á brott og Silva mun að öllum líkindum leyfa Gylfa að fá tíuna, bæði í leikskipulaginu og aftan á treyjuna.

„Stjórinn sér það þannig að hann vilji spila mér á miðsvæðinu, sem er gott. Við erum komnir með góða kantmenn sem eru hraðir og vonandi getum við nýtt okkur þá úti á köntunum og mig á miðjunni.“

„Mér fannst gaman að prófa að vera frammi, það var eitthvað nýtt sem ég lærði af. Það var ekki besta staðan fyrir mig en þú gerir það sem stjórinn segir þér að gera og reynir að hjálpa liðinu,“ sagði Gylfi Þór Sigurðsson.

Everton byrjar nýtt tímabil í ensku úrvalsdeildinni á laugardag. Þeir sækja nýliða Wolverhampton Wanderers heim klukkan 16:30. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×