Fótbolti

Griezmann: Ég veit ekki hvar ég er

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Antoine Griezmann fagnar gullstyttunni eftirsóttu með dóttur sinni
Antoine Griezmann fagnar gullstyttunni eftirsóttu með dóttur sinni Vísir/Getty
Antoine Griezmann skoraði eitt fjögurra marka Frakka í 4-2 sigri á Króatíu í úrslitaleik HM í Rússlandi í dag.

„Ég veit ekki hvar ég er. Ég er ótrúlega ánægður,“ sagði Griezmann í leikslok við franska fjölmiðla.

Griezmann var valinn maður úrslitaleiksins. Hann átti sendinguna inn á teiginn sem Mario Mandzukic stýrði í eigið mark og skoraði annað mark Frakka úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik.

„Þetta var mjög erfiður leikur. Króatar spiluðu vel en við mættum varkárir til leiks. Við unnum okkur inn í leikinn og náðum að skora nokkur mörk.“


Tengdar fréttir

Frakkar Heimsmeistarar í annað sinn

Frakkar eru Heimsmeistarar í knattspyrnu eftir 4-2 sigur á Króötum í mögnuðum úrslitaleik í Moskvu þar sem Pogba, Mbappe og Griezmann skoruðu allir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×