Fótbolti

„Taldi mig vera spila í Meistaradeildinni en ekki Áskorendakeppninni í handbolta”

Anton Ingi Leifsson skrifar
Arnar Sveinn í Evrópuleik með Val á síðustu leiktíð.
Arnar Sveinn í Evrópuleik með Val á síðustu leiktíð. vísir/ernir
Arnar Sveinn Geirsson, leikmaður Vals, var vægast sagt ósáttur með frammistöðu dómarans í leik Vals og Rosenborg í Þrándheimi í kvöld.

Dómari leiksins frá Búlgaríu dæmdi þrjú víti þar á meðal annars eitt í uppbótartíma sem varð til þess að Valur komst ekki áfram.

Arnar Sveinn fékk dæmt á sig síðasta vítið og á Twitter eftir leik var hann mjög ósáttur með dómarann. Hann líkti þessu við fíaskóið sem hefur verið í kringum Evrópukeppninar í handbolta.

„Ég taldi mig vera að spila í Champions League fótbolta en ekki Áskorendakeppni Evrópu í handbolta,” skrifaði Arnar Sveinn á Twitter-síðu sína í kvöld.

Evrópuævintýri Vals er þó ekki búið því þeir mæta Santa Coloma í Evrópudeildinni í næstu viku. Það er hluti af annarri umferðinni þar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×