Eyjamenn töpuðu aftur gegn Sarpsborg og eru úr leik

Anton Ingi Leifsson skrifar
Sindri og félagar eru úr leik.
Sindri og félagar eru úr leik. vísir/ernir
ÍBV er úr leik í Evrópudeildinni eftir 2-0 tap gegn Sarpsborg í síðari leik liðanna í Noregi í dag. Lokatölur samanlagt 6-0.

ÍBV tapaði fyrri leiknum 4-0 í Vestmannaeyjum og það var ljóst að það yrði ansi mikið að gerast svo að Eyjapeyjarnir myndu fara áfram.

Sú von var endalega úti er Mikkel Agger kom Sarpsborg yfir strax á þrettándu mínútu leiksins en staðan var 1-0 í hálfleik, heimamönnum í vil.

Agger var svo aftur á ferðinni er hann skoraði síðara mark Sarpsborg. Það kom átta mínútum fyrir leikslok og lokatölur 2-0 á heimavelli Sarpsborg í kvöld.

Lokatölur 6-0 sigur Sarpsborg sem er því komið áfram en Evrópuævintýri bikarmeistara ÍBV er lokið þetta árið.

Byrjunarlið ÍBV:

Halldór Páll Geirsson

Sigurður Magnússon

David Atkinson

Dagur Hilmarsson

Alfreð Hjaltalín

Priestley Keithley (80., Róbert Aron Eysteinsson)

Sindri Snær Magnússon

Atli Arnarson (60., Jonathan Franks)

Felix Örn Friðiksson

Shahab Zahedi

Kaj Leó í Bartalsstovu (70., Ágúst Leó Björnsson)

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira