Innlent

Segir ríkis­stjórnina bera á­byrgð á neyðar­á­standinu sem ríkir á Land­spítala

Berghildur Erla Bernharðsdóttir og Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifa
Katrín Sif Sigurgeirsdóttir er formaður kjaranefndar ljósmæðra.
Katrín Sif Sigurgeirsdóttir er formaður kjaranefndar ljósmæðra.
Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, formaður kjaranefndar ljósmæðra, segir að ríkisstjórnin beri ábyrgð á því neyðarástandi sem skapast hefur á Landspítalanum vegna yfirvinnubanns ljósmæðra sem nú hefur verið í gildi í  um einn og hálfan sólarhring.

Þetta sagði Katrín í samtali við fréttastofu í morgun áður en fundur í kjaradeilu ljósmæðra við ríkið hófst í húsakynnum ríkissáttasemjara. Sáttafundurinn hófst um klukkan 11.20 en áður en samninganefndirnar komu saman funduðu þær hvor í sínu lagi.

Upp úr klukkan 11:45 fóru þær síðan af fundi með sáttasemjara og funduðu aftur hvor fyrir sig. Sögðu þær lítið hægt að gefa upp um hvernig gengi í viðræðunum og það ætti eftir að koma í ljós hvernig dagurinn þróaðist.  Samninganefndirnar munu aftur funda með sáttasemjara þegar þær hafa lokið við að funda hvor fyrir sig.

 

Katrín sagði í morgun að ekki kæmi til greina af hálfu ljósmæðra að hvika frá sínum kröfum sem fela í sér 17 til 18 prósenta hækkanir þegar allt er tekið saman. Þá varpar hún ábyrgðinni á ástandinu á Landspítala á ríkisstjórnina en stjórnendur spítalans segja neyðarástand vera þar vegna yfirvinnubannsins.

„Ríkisstjórnin, klárlega. Það er bara klárt mál. Ég hef menntað mig til þess að hafa val á vinnumarkaði og sjá fjölskyldu minni farboða. Við kjósum hérna ríkisstjórn og borgum skatta sem á að sjá til þess að hér sé menntakerfi og heilbrigðiskerfi og svo framvegis í landinu. Það er á ábyrgð þeirra. Ég er starfskraftur til sölu og ég er meira að segja frekar ódýr starfskraftur, en ekki eins ódýr og verið hefur, það er alveg á hreinu,“ sagði Katrín í morgun en viðtalið við hana má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Fljúga með þungaðar konur norður vegna neyðarástands

Flogið hefur verið með þungaðar konur á Sjúkrahúsið á Akureyri og von er á fleirum þangað. Konur veigra sér við að hafa samband við fæðingardeildir því þær vilja ekki trufla. Deiluaðilar funda í dag. Tvisvar þurfti að óska eftir undanþágu frá yfirvinnubanni ljósmæðra á Landspítalanum í gær.

Ljósmæður ætla ekki að slá af kröfum sínum á sáttafundi í dag

Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, formaður kjaranefndar Ljósmæðrafélags Íslands, segir að ljósmæður muni ekki slá af þeim kröfum sem þær hafi áður sett fram á samningafundi í kjaradeilu þeirra við ríkið sem hófst klukkan 10:30 í húsakynnum ríkissáttasemjara.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×