Innlent

Slasaðist í Laugardalslaug

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá Laugardalslaug.
Frá Laugardalslaug. vísir/gva
Kalla þurfti eftir sjúkrabíl eftir hádegið í dag þegar ung kona slasaði sig við líkamsrækt í Laugardalslauginni. Bjarni Kjartansson, rekstrarstjóri Laugardalslaugar, segir í samtali við Vísi að konan hafi verið að sveifla sér í rimlagrind í svokallaðri Skólahreystisbraut sem er staðsett á milli laugarinnar og líkamsræktarstöðvar World Class í Laugum.

Samkvæmt lýsingu konunnar var hún að sveifla sér þegar hún missti gripið. Undirlagið er mjúkt en lendingin var það slæm að kallað var eftir aðstoð sjúkrabíls sem mætti í Laugardalinn með tilheyrandi sírenuvæli.

Konan fótbrotnaði og var flutt á brott í sjúkrabíl.

Fréttin hefur verið uppfærð eftir að rætt var við konuna sem slasaðist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×