Innlent

Loksins sól og hitamet slegið í Reykjavík

Sveinn Arnarsson skrifar
Dagblöðin Tíminn og Vísir fjölluðu ítarlega í máli og myndum um hitabylgjuna sem gladdi íbúa höfuðborgar Íslands fyrir 42 árum.
Dagblöðin Tíminn og Vísir fjölluðu ítarlega í máli og myndum um hitabylgjuna sem gladdi íbúa höfuðborgar Íslands fyrir 42 árum.
„Íslensk hitabylgja“ var slegið upp í forsíðufyrirsögn Vísis, 10. júlí árið 1976 vegna hitans í Reykjavík daginn áður.

Hinn 9. júlí fór í sögubækurnar fyrir að vera með eindæmum veðursæll á landinu. Hitamet var slegið þennan dag í höfuðborginni en þar mældist hitinn 24,3 gráður. Tíminn birti forsíðumynd daginn eftir af buguðum manni á Austurvelli vegna hitans.

„Það er augljóst að við hér í Reykjavík vorum að slá met á þessari öld hvað hita snertir og ég held að það megi fullyrða það, að þetta sé mesti hiti sem mælzt hefur í Reykjavík síðan hitamælingar hófust,“ sagði Markús Einarsson, veðurfræðingur, í viðtali við Tímann daginn eftir að hitametið féll.

„Loksins, sögðu íbúar höfuðborgarinnar, loksins kom blessuð sólin… Sumum þótti þó nóg um þegar hitinn fór upp í 24,3 stig sem reyndist vera met á þessari öld,“ birtist svo í Tímanum þann 14. júlí þegar blaðið birti ýmsar myndir úr Reykjavík sem sýndu fáklædda höfuðborgarbúa sóla sig í blíðunni.

Veðrið var síðan með eindæmum gott á höfuðborgarsvæðinu næstu daga og var mál manna að lundin hefði lést hjá höfuðborgarbúum.

„En því miður virðist þessi góðviðriskafli liðinn, að minnsta kosti eftir því sem Markús Einarsson veðurfræðingur fræddi Tímann á, en hann sagði, að almennt yfir landið myndi nú verða minni sól en undanfarna daga,“ sagði í Tímanum, sama dag og blíðviðrismyndirnar birtust, þann 14. júlí.

Á þessum tíma höfðu gríðarlegir hitar geisað í Evrópu og valdið íbúum álfunnar erfiðleikum. Austanstæðir vindar báru hluta þess lofts með sér til Íslands sem gerði það að verkum að nánast allt landið var baðað hita þennan daginn. Hitinn þennan dag, 9. júlí, fór mest í 27 gráður á landinu. Það var hins vegar ekki nægjanlegt til að slá hitamet í Eyjafirðinum enda þekktur fyrir veðurblíðu að sumrin þar sem hitastig hefur náð nærri þrjátíu gráðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×