Erlent

Skotárás í miðborg Helsingborgar

Atli Ísleifsson skrifar
Tilkynning barst lögreglu skömmu eftur klukkan 20 að staðartíma.
Tilkynning barst lögreglu skömmu eftur klukkan 20 að staðartíma. Vísir/Getty
Skotárás var gerð nálægt Gustav Adolfs kirkju í miðborg Helsingborgar á Skáni í Svíþjóð í kvöld. Sydsvenskan hefur eftir lögreglu að fjöldi fólks hafi særst og verið fluttur á sjúkrahús.

Lögregla hefur ekki viljað tjá sig um ástand hinna særðu.

Tilkynning barst lögreglu skömmu eftur klukkan 20 að staðartíma, eða um klukkan 18 að íslenskum tíma.

Sjónarvottar segja að karlmaður á bifhjóli hafi flúið frá vettvangi og haldið í átt að Södergatan.

Fjölmennt lið lögreglu er á staðnum og er búið að girða af stórt svæði.

Uppfært 20:02:

Aftonbladet greinir frá því að fjórir hafi særst í árásinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×