Lífið

Gera heimildarmynd um ævintýri strákanna okkar á HM í Rússlandi

Benedikt Bóas skrifar
Tökulið frá Octoberfilms tekur upp efni á æfingu íslands á HM í Rússlandi. Heimir Hallgrímsson fylgist íbygginn með æfingunni.
Tökulið frá Octoberfilms tekur upp efni á æfingu íslands á HM í Rússlandi. Heimir Hallgrímsson fylgist íbygginn með æfingunni. Fréttablaðið/Eyþór
Knattspyrnusamband Íslands fékk fjölda tilboða frá kvikmyndagerðarfólki sem vildi gera heimildarmynd um Rússlandsför íslenska landsliðsins. Eftir smá umhugsun var tilboði tekið frá breska kvikmyndafyrirtækinu Octoberfilms og eru sex til átta manns frá sjónvarpsveitunni á öllum æfingum liðsins í Kabardinka þar sem liðið hefur aðsetur. Tekur hópurinn upp hvert fótspor íslenska landsliðsins og fær mjög góðan aðgang að liðinu á eftir.

Kvikmyndafyrirtækið kíkti einnig í heimsókn þegar íslenska liðið var í Bandaríkjunum þar sem það lék tvo vináttuleiki við Perú og Mexíkó í undirbúningi liðsins fyrir heimsmeistaramótið. Þá hafa þeir einnig heimsótt leikmenn á heimilum þeirra víða um Evrópu.

Þórður Jónsson, sem gerði meðal annars heimildarkvikmyndina Garn, er tengiliður við fyrirtækið og segir að engin dagsetning sé komin á hvenær myndin verði frumsýnd. „Það er ekkert leyndarmál að við erum að gera þessa mynd en ég get lítið sagt annað.“



Landsliðið vekur gríðarlega athygli um allan heim og er mikil vöntun á efni frá liðinu. Það verður bætt úr því eftir HM þegar heimildarmyndin kemur út. Fréttablaðið/Eyþór
Octoberfilms er breskt framleiðslufyrirtæki sem hefur unnið til fjölmargra verðlauna fyrir myndir sínar og þetta er stórt batterí sem er í gangi. Hún verður frumsýnd eitthvað eftir HM.“ Það má búast við að milljónir manna muni njóta myndarinnar þegar hún kemur út. „Þetta er eitt dæmi um hvað landsliðið er að fá mikla athygli,“ segir Þórður.

Sölvi Tryggvason og Sævar Guðmundsson gerðu heimildarmynd um undankeppnina fyrir Evrópumeistaramótið en engin mynd var gerð um keppnina sjálfa. Kvikmyndin Jökullinn logar var einmitt sýnd í borgunum þremur sem landsliðið mun leika í, Moskvu, Volgograd og Rostov við Don. Alls staðar var fullt á sýningum myndarinnar og henni afar vel tekið. Myndin hefur farið víða og verið sýnd á 20 kvikmyndahátíðum í Evrópu, Bandaríkjunum, Mið- og Suður-Ameríku og hafa milljónir manna nú séð hana.

Áhuginn á landsliðinu er gríðarlegur og sagði Ómar Smárason, fjölmiðlafulltrúi KSÍ, að hann hefði fengið um 200 tölvupósta um viðtalsbeiðnir á dag í aðdraganda mótsins. Þá voru um eitt þúsund blaðamenn frá öllum heimshornum að störfum á leik Argentínu og Íslands. Búist er við að enn fjölgi í þeim hópi eftir jafnteflið – sem var í raun sigur. 


Tengdar fréttir

Jökullinn logar vinnur aðalverðlaunin á kvikmyndahátíð í New York

Kvikmynd Sölva Tryggvasonar og Sævars Guðmundsson, Jökullinn logar, um aðdraganda og undirbúning íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu fyrir Evrópumótið í Frakklandi í fyrra hlaut í dag aðalverðlaunin á kvikmyndahátíðinni Kicking + Screening í New York.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×