Skoðun

Gamalt sé nógu gott fyrir sjúklingana!

Birgir Guðjónsson skrifar
Við lokapróf á námsárum mínum kom læknastúdent upp til munnlegs prófs og fékk spurningu sem hann svaraði ákveðið. Prófessorinn spurði hissa „hvaðan hefurðu þetta?“. „Úr nýju útgáfunni af kennslubókinni,“ svaraði stúdentinn. Prófessorinn barði í borðið og sagði, „ég sagði ykkur að lesa gömlu útgáfuna.“

Parkinsonsjúkdómur er ólæknandi, krónískur sjúkdómur sem hægt er að halda í skefjum með einstaklingsbundinni nákvæmlega tímasettri lyfjagjöf og sjúkraþjálfun og skapa sjúklingum ásættanleg lífsgæði í nokkurn tíma.

Það voru gleðitíðindi að ungur læknir í sérnámi við eitt fremsta háskólasjúkrahús vestan hafs hefði lagt sig eftir greiningu og meðferð á Parkinsonsjúkdómi. Læknirinn vill snúa heim og hefur leitað eftir starfsmöguleikum með því að komast á starfssamning við Sjúkratryggingar Íslands en var hafnað að fyrirmælum ráðherra. Skilaboð ráðherra virðast skýr; gamlingjar og gömlu úrræðin eru nógu góð fyrir Parkinsonsjúklinga (sem og aðra sjúklinga).

Íslenskir læknar eins og viðkomandi sérfræðingur hafa oft komist að í sérnám erlendis við bestu háskólastofnanir og tekið þátt í framþróun læknisfræðinnar. Þekking þeirra og reynsla telst þá mikil verðmæti og þeim bjóðast oft störf í námslandinu. Flestir vilja koma heim en mörgum hefur verið hafnað til starfa í eigin heimalandi. Svo virðist í þessu tilfelli.

Hagkvæmis vegna er eitt meginmarkmið í heilbrigðisþjónustu víða um heim að færa sem mest af greiningu og meðferð sjúkdóma út úr legurýmum sjúkrahúsa (hvað þá mygluðum!) í „ambulant“ aðstöðu, þ.e. læknastofur eða göngudeildir. Sérfræðingar á einkastofum höfðu veitt slíka þjónustu áratugum saman áður en skilningur á þessu kom til hjá LSH sem stofnsetti fyrstu göngudeildina 1974 og þá eingöngu fyrir einn ákveðinn sjúkdóm. Þróunin síðan hefur verið hæg. Markmið ráðherra virðist vera að sporna við starfi sjálfstæðra lækna þó augljóst sé að LSH geti ekki tekið þessa þjónustu að sér og skammta þannig sjúklingum aðgengi að nýjustu og bestu meðferð. Þekking og reynsla skapast ekki með pólitískum tilskipunum.



Höfundur er fv. Assistant professor og sérfræðingur við Yale læknaháskólann, MACP, FRCP, AGAF, FASGE




Skoðun

Sjá meira


×