Fótbolti

Cesc Fabregas hrósar íslenska liðinu fyrir að hafa fundið leiðina til að stoppa Messi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Cesc Fabregas og Lionel Messi. Þeir þekkjast vel.
Cesc Fabregas og Lionel Messi. Þeir þekkjast vel. Vísir/Getty
Cesc Fabregas er pistlahöfundur hjá BBC á HM í Rússlandi og í nýjasta pistli sínum þá fjallar hann um vin sinn og fyrrum liðsfélaga Lionel Messi. Messi og félagar í Argentínu eru bara með eitt mark skorað og eitt stig í húsi eftir tvo fyrstu leiki sína á HM.

Cesc Fabregas fjallar um Lionel Messi og Argentínu eftir 3-0 tapið á móti Króatíu í gær en spænski miðjumaðurinn eyddi engu að síður hluta af pistli sínum í það að hrósa íslenska landsliðinu fyrir það sem strákarnir okkar gerðu í Argentínuleiknum.

„Ísland setti ekki einn leikmann á Lionel Messi þegar liðið mætti Argentinu en liðið var með svo marga leikmenn aftarlega á vellinum að Messi hafði ekkert pláss til að vinna með,“ skrifaði Cesc Fabregas.

„Það er ekki oft sem maður sér lið stoppa Messi og ég vil því hrósa íslenska liðinu fyrir að gera það svona vel. Ég sá að Leo datt aftur á völlinn þegar leið á til að reyna að búa eitthvað til,“ skrifar Fabregas.

„Þegar hann er kominn svona aftarlega á völlinn þá fær hann ekki lengur boltann á hættulegum stöðum og ef ég væri hann þá væri ég þá orðinn prekar pirraður,“ skrifar Cesc.

„Þú vilt sjá Messi framar á vellinum svo að hann fái boltann á síðasta þriðjungnum og komi einhverju í gang. En um leið og honum finnst hann ekki vera að fá nægjanlega þjónustu þá dettur hann aftar og aftar á völlinn. Það er ekki góð þróun fyrir argentínska landsliðið,“ skrifaði Cesc Fabregas.

„Það var svipaða sögu að segja af Messi í Króatíuleiknum en þetta var ekki bara honum að kenna. Eins og ég sagði í sjónvarpinu þá lítur út fyrir að argentínska liðið sé brotið. Þetta hefur því verið mjög erfitt fyrir Messi. Hann hefur ekki nægilega mikil gæði með sér og engan til að hjálpa honum almennilega að koma spili í gang,“ skrifaði Cesc Fabregas.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×