Jafntefli í bráðfjörugum leik Japans og Senegal

Anton Ingi Leifsson skrifar
Japan og Senegal skiptu með sér stigunum í leik liðanna á HM í dag.
Japan og Senegal skiptu með sér stigunum í leik liðanna á HM í dag. vísir/getty
Japan og Senegal gerðu 2-2 jafntefli í fjörugum leik í öðrum leik dagsins á HM í knattspyrnu. Bæði lið eru með fjögur stig eftir fyrstu tvo leikina.

Bæði lið unnu nokkuð óvænta sigra í fyrstu umferðinni en Senegal hafði betur gegn Póllandi á meðan Japan vann Kólumbíu.

Fyrri hálfleikurinn var mjög fjörugur og fyrsta markið skoraði Sadio Mane eftir skelfileg mistök Eiji Kawashima í marki Japan en Japan hafði verið betri aðilinn fram að þessu.

Á 34. mínútu jafnaði Takashi Inui. Skemmtilegt spil sem endaði með því að Inui fékk boltann og átti ekki í erfiðleikum með að koma boltanum í netið. 1-1 í hálfleik en Japan sterkari aðilinn.

Baráttan var hörð í dag.vísir/getty
Áfram héldu Japanir að stýra leiknum en það var hins vegar Senegal sem komst aftur yfir er Moussa Wague, nítján ára bakvörður, skoraði laglegt mark eftir fyrirgjöf á 71. mínútu.

Það var svo hinn ólseigi Keisuke Honda sem jafnaði metin fyrir Japan á nýjan leik tólf mínútum fyrir leikslok og lokatölur 2-2. Bæði lið því með fjögur stig eftir tvo leiki.

Í lokaumferðinni mætast Pólland og Japan og Kólumbía og Senegal en í kvöld mætast Pólland og Kólumbía. Bæði Japan og Senegal eru í fínni stöðu fyrir lokaumferðina.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira