Pólverjar á heimleið eftir stórtap gegn Kólumbíu

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Falcao og James Rodriguez voru frábærir í kvöld
Falcao og James Rodriguez voru frábærir í kvöld Vísir/Getty
Pólverjar eiga ekki möguleika á farseðli í 16-liða úrslit á HM í Rússlandi. Þetta varð ljóst eftir að Kólumbía vann öruggan þriggja marka sigur á Pólverjum í Kazan í kvöld.

Kólumbíumenn voru miklu betri stærstan hluta leiksins. Undir lok fyrri hálfleiks kom varnarmaðurinn Yerri Mina Kólumbíu yfir með laglegu skallamarki.

Kólumbía gerði svo út um leikinn rúmum stundarfjórðungi fyrir leikslok með mörkum frá Falcao (70´) og Juan Cuadrado (75´).

Pólverjar því stigalausir eftir tvær umferðir á meðan Kólumbía er nú með málin í sínum höndum en þeir mæta Senegal í lokaumferðinni og geta tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum með sigri þar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira