Innlent

Eva Björk er nýr formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Eva Björk Harðardóttir, nýr formaður SASS á Suðurlandi, er ekki fyrsta konan til að gegna stöðu formanns í samtökunum en karlmenn hafa hingað til verið í miklum meirihluta formanna.
Eva Björk Harðardóttir, nýr formaður SASS á Suðurlandi, er ekki fyrsta konan til að gegna stöðu formanns í samtökunum en karlmenn hafa hingað til verið í miklum meirihluta formanna. Vísir/Magnús Hlynur Hreiðarsson
Eva Björk Harðardóttir, oddviti Skaftárhrepps, var kosinn formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) á aukaaðalfundi samtakanna sem fór fram í Vestmannaeyjum í dag.

Eva Björk tekur við starfinu af Gunnari Þorgeirssyni fráfarandi oddvita Grímsnes og Grafningshrepps.

„Starfið leggst bara vel í mig, það er fullt af nýju og reyndu áhugasömu sveitarstjórnarfólki með mér í nýju stjórninni  til að vinna með. Mín fyrstu verk verða að rekja garnirnar úr fráfarandi formanni og koma mér inn í öll mál.

Brýnustu mál SASS í dag eru að koma almenningssamgöngumálunum í horf því vegna mikils taps síðustu ára á rekstrinum þarf að koma til fé frá ríkinu eða finna málaflokknum annan farveg. Við þurfum einnig að skoða í sameiningu sveitarfélögin, hvernig við viljum sjá landshlutasamtökin þróast“, segir Eva Björk, nýr formaður SASS.

Innan SASS eru fimmtán sveitarfélög á Suðurlandi með um 28 þúsund íbúa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×