Innlent

Áhöfnin á Baldri dró vélarvana skemmtibát á Breiðafirði

Þórhildur Erla Pálsdóttir skrifar
Frá vettvangi í morgun
Frá vettvangi í morgun Vísir(Landhelgisgæslan
Vélarvana skemmtibátur sem staddur var á Breiðafirði óskaði eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar laust eftir klukkan níu í morgun. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kallaði sjómælingabátinn Baldur út en hann var staddur við Brjánslæk. Áhöfnin brást hratt og örugglega við beiðninni og hélt þegar í stað til móts við skemmtibátinn.

Um klukkan 9:30 var áhöfn Baldurs kominn á staðinn og tók fólkið um borð og dró bátinn til hafnar. Sex voru um borð í skemmtibátnum þar af tvö börn en ekkert amaði að fólkinu og engin hætta var á ferðum. Baldur dró bátinn til Brjánslækjar og var kominn þangað tæpri klukkustund eftir að útkallið barst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×