Átti að vera vísað úr landi í nótt en fær ríkisborgararétt í staðinn Gunnar Hrafn Jónsson skrifar 11. júní 2018 22:09 Konunni gafst ekki tækifæri til að kæra úrskurð Útlendingastofnunar vegna mistaka
Hælisleitandinn Nargiza Salimova, sem hafði fengið tilkynningu um að henni yrði vísað úr landi í nótt, mun að öllum líkindum verða íslenskur ríkisborgari á morgun. Kjarninn hefur eftir lögfræðingi hennar að fyrir vikið sé búið að fresta framkvæmd þess að vísa Nargizu úr landi en frumvarpið verður að öllum líkindum borið upp til atkvæðagreiðslu á Alþingi í fyrramálið. Hefð er fyrir að tugum erlendra ríkisborgara sé veitt íslenskt ríkisfang með lagafrumvarpi í lok þings en sú framkvæmd hefur verið gagnrýnd. Mál Nargizu hefur vakið nokkra athygli og meðal annars verið til umfjöllunar í Kjarnanum. Hún er frá Kirgistan en kom til Íslands fyrir rúmum átta mánuðum og sótti um alþjóðlega vernd. Útlendingastofnun hafnaði þeirri umsókn en henni gafst aldrei tækifæri til að kæra þann úrskurð vegna mistaka hjá fyrrverandi talsmanni hennar. Nargiza hefur farið í skýrslutöku til lögreglu vegna gruns um að hún sé fórnarlamb mansals. Eiginmaður hennar hvarf úr haldi lögreglu í heimalandinu og var hún að sögn ofsótt eftir að hún fór að grennslast fyrir um afdrif hans. Þá segir hún að smyglarinn sem kom henni til landsins hafi tekið vegabréf hennar og látið sig hverfa. Í viðtali við Kjarnann sagði hún það sína heitustu ósk að fá börnin sín tvö frá Kirgistan til Íslands. Öðlist Nargiza íslenskan ríkisborgararétt í fyrramálið er ljóst að sá draumur er töluvert nær því að verða að veruleika.
Tengdar fréttir Lagt til að 69 fái íslenskan ríkisborgararétt Allsherjarnefnd Alþingis hefur lagt til að 69 einstaklingum verði veittur ríkisborgararéttur áður en þingi verður frestað. 11. júní 2018 21:20 Mest lesið Halla Tómasdóttir tekur stökk í nýrri könnun Prósents Innlent Samfélagið í áfalli vegna málsins Innlent Mikið vesen á veitingastöðum borgarinnar Innlent Minnstu smáatriði úthugsuð og til þess gerð að skapa hughrif Innlent „Algjörlega forkastanlegt“ ef stjórnvöld svari ekki beiðninni Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Mig langaði bara að drepa þennan mann“ Innlent Ragnar Freyr segist hreinsaður af sök Innlent Aftur barist í norðurhluta Gasa á meðan þúsundir flýja Rafah Erlent „Hann hættir bara ekki” Innlent Fleiri fréttir Mikið vesen á veitingastöðum borgarinnar Halla Tómasdóttir tekur stökk í nýrri könnun Prósents „Algjörlega forkastanlegt“ ef stjórnvöld svari ekki beiðninni Minnstu smáatriði úthugsuð og til þess gerð að skapa hughrif Samfélagið í áfalli vegna málsins Vilja bæta íslenskukennslu fyrir innflytjendur Ragnar Freyr segist hreinsaður af sök Læknir segir að brottvísun muni ógna lífi sjúklings „Er réttur þinn eða mannréttindi að einhver annar deyði þig?“ Kviknaði í bragga á Egilsstöðum Bíó og plokkfiskur á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina Meint fjárkúgun, frelsissvipting og líkamsárás Rannsaka alvarlegt ofbeldisbrot í Árnessýslu Pólitíkin, dánaraðstoð, NATO og kosningar á Sprengisandi „Mig langaði bara að drepa þennan mann“ Grunaðir um rán í miðbænum Aðrir frambjóðendur en efstu tveir eigi töluvert langt í land Sauð upp úr milli bónda og dýraverndunarsinna Kappræðurnar höfðu talsverð áhrif á kjósendur Forréttindi að fá að fylgja fólki í gegnum erfiðasta tíma lífsins Vilja breyta fyrirkomulagi við úthlutun plássa „Maður getur varla ímyndað sér hvað þarf að koma til“ Handtaka hælisleitenda og brottrekstur Hollands úr Eurovision Hitaveitulögn sprakk í Breiðholti Leita enn að þeim sem réðu barnabarninu bana Rigning í kortunum í kvöld „Hann hættir bara ekki” Hótaði lögregluþjónum og fjölskyldum þeirra Vilja að plássum í sumarfrístund sé útdeilt með sanngjarnari hætti Mótmælendur gegn brottvísun hindruðu för lögreglubíls Sjá meira
Lagt til að 69 fái íslenskan ríkisborgararétt Allsherjarnefnd Alþingis hefur lagt til að 69 einstaklingum verði veittur ríkisborgararéttur áður en þingi verður frestað. 11. júní 2018 21:20