Fótbolti

Kveðja frá Rússlandi: Veislan sem aldrei átti að verða að byrja

Kolbeinn Tumi Daðason á leið til Moskvu skrifar
23 íslenskir víkingar og fjöldin allur af starfsliði frá KSÍ fékk boðsmiða í partý ársins
23 íslenskir víkingar og fjöldin allur af starfsliði frá KSÍ fékk boðsmiða í partý ársins vísir/vilhelm
Flautað verður til leiks í Moskvu í dag þegar heimamenn mæta Sádí Arabíu í opnunarleik mótsins. Sú var tíðin að ríkjandi heimsmeistarar spiluðu opnunarleikinn en í seinni tíð hafa heimamenn verið annar aðilinn. Ísland var náttúrulega nálægt því að fá opnunarleikinn fyrir fjórum árum en Króatarnir höfðu betur í umspilinu og mættu Brössunum á þeirra heimavelli. Ísland fær reyndar sinn opnunarleik í Moskvu, gegn Argentínu, og líklega fátt sem getur toppað þá byrjun. Jú, kannski stig - eitt eða þrjú.

Síðan ungir íslenskir krakkar byrjuðu að safna Panini límmiðum og fylgjast með Schumacher sparka niður Battison, Maradona skora með hendi, Roger Milla dansa við hornfánann og Svía ná í óvænt bronsverðlaun hefur veislan á fjögurra ára fresti verið heilög stund. Ungir áhugamenn njóta þess að geta horft á hverja einustu mínútu af HM í sjónvarpinu ef svo ber undir, og fara svo út í fótbolta og leika eftir tilþrif hetjanna. Nú eru hetjurnar íslenskar, eitthvað sem fæstir áttu von á að myndi nokkurn tímann gerast. 

Strákarnir hafa verið ekkert nema bros þessa fyrstu daga í Rússlandi. Alvaran hefst á laugardag.vísir/vilhelm
FIFA ætlar reyndar að stækka HM í 48 þjóðir þegar leikið verður í Banaríkjunum, Kanada og Mexíkó árið 2026. Fullvíst mun telja að einhver þjóð tryggi sér sæti á HM í fyrsta skipti. Þjóðirnar voru þó enn 32 þegar Ísland tryggði sig. Ítalir sátu eftir heima, Hollendingar sömuleiðis, Bandaríkjamenn og Chile. Ísland vann dauðariðilinn og það sem meira er gleymdi sér ekkert eftir ævintýrið í Frakklandi 2016, sem hefði verið svo auðvelt. Gleyma sér í dýrðarblóma. Ekki þessir strákar.

Þeir eru nú nýlentir í Moskvu þangað sem töluverður fjöldi Íslendinga er mættur og fleiri streyma að á morgun og hinn. Argentínumenn eru fyrirferðamiklir í höfuðborginni enda kunna þeir vel þá list að skella sér á HM. Tvöfaldir heimsmeistarar og alltaf líklegir kandídatar með örvfættu leyniskyttuna Messi í sínu liði. 

Veislan sem enginn átti von á að Ísland yrði boðið í er byrjuð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×