Tónlist

Nýtt óhefðbundið HM lag

Bergþór Másson skrifar
Elli Grill ásamt fríðu föruneyti. Meðal annars má hér sjá rapparann Kilo og forsprakka grínþáttarins Kaupa Dót, Tuma Gonzo.
Elli Grill ásamt fríðu föruneyti. Meðal annars má hér sjá rapparann Kilo og forsprakka grínþáttarins Kaupa Dót, Tuma Gonzo. YouTube
Rapparinn Elli Grill gefur út nýtt lag í tilefni HM í Rússlandi.

Elli Grill hefur gert garðinn frægan með hljómsveitinni Shades of Reykjavík og samstarfi sínu með tónlistarkonunni Leoncie.

Elli Grill hefur hingað til verið þekktur sem óhefðbundinn rappari og mikill húmoristi. Nýtilkomin þjóðernishyggja hans gæti þess vegna komið aðdáendum hans á óvart.

Nú hefur hann gefið út HM lag og er það vægast sagt nokkuð frábrugðið öðrum lögum sem gefin hafa verið út í tengslum við Heimsmeistaramótið.

Hér að neðan má líta á lagið.


Tengdar fréttir

Pantaði sér gulltennur frá Texas fyrir peninginn

Rapparinn Elli Grill sendi frá sér lagið Skidagrimu Tommi í síðustu viku en um er að ræða lag sem hann tók upp í Bandaríkjunum. Elli sendir frá sér nýja plötu á föstudaginn sem hann segir minni á tungllendinguna og fái álfa og huldufólk til þess að efast um tilvist sína.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×