Fótbolti

HM mögulega búið hjá Jóhanni Berg

Kolbeinn Tumi Daðason í Kabardinka skrifar
Jóhann Berg í baráttunni á Spartak-leikvanginum í gær.
Jóhann Berg í baráttunni á Spartak-leikvanginum í gær. Vísir/Kolbeinn Tumi
Jóhann Berg Guðmundsson fór meiddur af velli í síðari hálfleik gegn Argentínu í gær. Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari sagði á blaðamannafundi eftir leik að kantmaðurinn knái væri líkast til tognaður í kálfa. Hann tjáði svo blaðamönnum í morgun að Jóhann Berg væri í myndatöku og átti ekki von á því að Jói myndi spila gegn Nígeríu á föstudaginn.

Jóhann Berg fór í jörðina að því virtist án snertingar um miðjan seinni hálfleikinn í gær. Hann lagðist niður og var greinilegt að eitthvað mikið var að. Rúrik Gíslason var kallaður til og fyllti í skarðið.

„Jói fór í skann í morgun og við fáum eitthvað út úr því seinna í dag,“ sagði Heimir. Hann reiknar ekki með honum í leikinn gegn Nígeríu eins og staðan er núna

„Nei, ég myndi segja að fyrsta hugsun sé að hann verði meiddur í næsta leik, verði ekki búinn að ná sér .Maður veit aldrei. Kannski er þetta sambland af krampa og tognun.“

Í leikslok var ljóst að Jóa var vel brugðið, hann felldi tár á meðan aðrir leikmenn og starfsfólk KSÍ fagnaði unnu stigi með stuðningsmönnum. Greinilegt á Jóa að miklar tilfinningar voru í gangi og möguleiki á að HM-ævintýri hans væri úti.

Þjálfarateymi landsliðsins bíður niðurstöðu úr myndatökunni í dag. Jóhann Berg hefur verið einn allra besti leikmaður Íslands í undankeppninni, skoraði mikilvæg mörk og ein okkar allra mesta ógn í sóknarleiknum. Þá hefur hann bætt varnarleik sinn mikið og er orðinn hörkuvarnarmaður í landsliðinu.

 Vísir er með öflugt teymi í Rússlandi sem verður með ítarlegan fréttaflutning af íslenska liðinu á HM. Fylgist með á samfélagsmiðlum okkar - á FacebookTwitter og Instagram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×