Fótbolti

Sumarmessan: Hjörvar greinir frábæra frammistöðu Hannesar

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Hannes Þór Halldórsson fagnar.
Hannes Þór Halldórsson fagnar. Vísir/Getty
Hannes Þór Halldórsson varði vítaspyrnu frá Lionel Messi í leik Íslands og Argentínu á HM á laugardag. Það var þó ekki það eina sem hann gerði í leiknum því Hannes varði oft meistaralega og átti stórbrotinn leik.

Hjörvar Hafliðason fór vel yfir hvað Hannes var að gera í leiknum í Sumarmessuni í gærkvöld.

Hjörvar fór nákvæmlega yfir staðsetningar hans í einu færi Argentínumanna og var Reynir Leósson hvumsa yfir fræðum Hjörvars.

„Ég vissi að þetta væri frábær varsla en ég vissi ekki að það væru svona mikil vísindi á bakvið þetta,“ sagði Reynir.

Þessa frábæru greiningu Hjörvars má sjá í sjónvarpsglugganum með fréttinni.

Sumarmessan er á dagskrá á Stöð 2 Sport klukkan 21:00 alla leikdaga á HM.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×