Innlent

Segir stjórnmálamenn eiga að takast á um hluti á uppbyggilegan hátt

Sylvía Hall skrifar
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir segir ríkisstjórnina vera svar við ákalli þjóðarinnar um pólitískan stöðugleika.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir segir ríkisstjórnina vera svar við ákalli þjóðarinnar um pólitískan stöðugleika. Vísir/Vilhelm
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, formaður þingflokks Vinstri grænna, segir ríkisstjórnarsamstarfið vera svar við ákalli almennings um starfhæfa ríkisstjórn. Hún segir gott starf fara fram í nefndum þingsins en ekki takist alltaf vel til og henni þykir miður að frumvarp um veiðigjöld hafi verið afgreitt úr nefnd í ósætti. Þetta kom fram í ræðu hennar í eldhúsdagsumræðum á Alþingi nú í kvöld.

Hún segir það liggja í augum uppi að flokkarnir þrír séu til vegna ólíkra sjónarmiða um hvernig skuli haga málefnum samfélagsins. Samstarfið geti því tekið á, en þeim beri skylda til þess að komast að niðurstöðu og leiða mál til lykta á lýðræðislegan hátt. Flokkarnir hafi náð saman um ný fjárlög með skömmum fyrirvara í upphafi samstarfsins og það hafi gefið góð fyrirheit um farsælt samstarf.

Í ræðu sinni segir hún megináherslu hafa verið lagða á uppbyggingu innviða samfélagsins og það að auka jöfnuð hérlendis. Störf ríkisstjórnarinnar sýni fram á það að þeim sé alvara í þeim efnum og nefnir í því samhengi framkvæmdir við nýtt þjóðarsjúkrahús, nýsköpun í velferðarþjónustu og áform um aukin útgjöld í menntakerfi og samgöngumál.

Bjarkey segir það heyra til undantekninga að þingstörf fari í uppnám vegna mála á borð við frumvarp um lækkun veiðigjalda og mál séu almennt leyst án mikilla átaka. Hún telur slíkar deilur móta mest þá mynd sem fólk hefur af störfum Alþingis.

„Vissulega er tekist á á Alþingi en lang oftast eru málin leyst án þess að þingsalurinn verði vettvangur átaka. Það fer líka best á því, og þótt stjórnmál snúist alltaf að einhverju leyti um að skiptast á skoðunum og takast á um stefnu og leiðir, ber okkur að gera það á uppbyggilegan hátt.”




Fleiri fréttir

Sjá meira


×