Lífið

„Ímyndaðu þér ef barnið þitt hefði þessa framtíðarsýn“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Ragga nagli veltir því fyrir sér hvenær fólk byrji að reisa níðstöng um spegilmyndina.
Ragga nagli veltir því fyrir sér hvenær fólk byrji að reisa níðstöng um spegilmyndina. Vísir/Eyþór
„Þegar ég verð stór þá vil ég hata líkamann minn. Byrja daginn á að klípa í húðflygsur og forðast spegla það sem eftir lifir dags. Þegar ég verð fullorðin langar mig að missa svefn yfir hvað náunganum finnst um rassinn á mér. Í framtíðinni vil ég vera með þráhyggju yfir hverju einasta atómi af mat sem ég læt upp í mig. Ég vil eyða mörgum árum í samviskubit yfir öllum skiptunum sem ég borðaði einni pönnuköku of mikið. Ég vil eyða sem mestri orku og tíma í tilfinningalegt gubb yfir glúteini, laktósa, kílóum, appelsínuhúð og buxnastærð... sagði enginn aldrei.“

Svona hefst nýr pistill eftir þjálfarann og sálfræðinginn Ragnhildi Þórðardóttur, sem er betur þekkt sem Ragga Nagli. Þar hvetur hún fólk til þess að taka spegilmyndina í sátt.

„Ímyndaðu þér ef barnið þitt hefði þessa framtíðarsýn. Þú myndir tapa glórunni af áhyggjum af barninu. Reita hárið. Missa svefn. Poppa kvíðastillandi. En því miður er þetta blákaldur veruleiki margra komna á meðalaldurinn. Ef þú fylgist með eins árs gömlu barni skakklappast að spegli. Kyssa spegilinn blautum slefuðum kossum.  Ajax brúsinn fer á loft hjá mömmunni til að þurrka burt kámug fingraförin.“

Flestir gera þetta sem börn, en Ragga spyr af hverju fólk hætti þessu. 

„Hvenær byrjum við að reisa níðstöng um spegilmyndina? Vertu eins árs í dag. Kysstu spegilinn. Skítt með Ajaxið. Leyfðu kossinum að vera sem tákngerving um nýja tíma. Héðan í frá ætlarðu að elska og virða spegilmyndina.  Þú ætlar að gefa henni fimmu. Segja fallega hluti um manneskjuna sem starir á móti þér. „Þarna er ég. Ég er æði. Ég er falleg og ég er nóg.““


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×