Fótbolti

Marcelo pirraður út í umræðuna eftir Meistaradeildarsigur Real Madrid

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Marcelo og Sergio Ramos með Meistaradeildarbikarinn.
Marcelo og Sergio Ramos með Meistaradeildarbikarinn. Vísir/Getty
Brasilíumaðurinn Marcelo vann á dögunum Meistaradeildina þriðja árið í röð með Real Madrid en hann er ekki sáttur með umræðuna eftir leikinn.

Í stað þess að lofsyngja einstakan árangur Real Madrid liðsins þá finnst Marcelo að blaðamenn og aðrir hafi leitað uppi það neikvæða við sigur spænska liðsins.

Umfjöllunin hefur vissulega snúist mikið í kringum meiðsli Liverpool-manna og tuddaskap fyrirliða Real Madrid. Marcelo ræddi þetta á blaðamannafundi með brasilíska landsliðinu en bakvörðurinn er á leiðinni á HM í Rússlandi eins og íslenska landsliðið.

Markvörðurinn Loris Karius gerði skelfileg mistök í leiknum og stórstjarna Liverpool-liðsins, Mo Salah, fór meiddur og grátandi af velli. Sergio Ramos fékk síðan á sig mikla gagnrýni fyrir að gefa Karius olnbogaskot og snúa síðan Mo Salah niður þegar Egyptinn meiddist.  





„Það pirrar mig að þegar við vinnum Meistaradeildina þriðja árið í röð og menn eru að segja að það sé vegna þess að einn leikmaður lenti í árekstri við markvörð þeirra eða að einn leikmaður þeirra þurfti að fara af velli eða að þeir fengu ekki vítaspyrnu sem þeir áttu að fá,“ segir Marcelo eins og sjá má hér fyrir ofan.

Marcelo hélt áfram: „Mér finnst að fólk eiga að gefa okkur meira hrós. Real Madrid hefur unnið þessa þrjá titla á eigin verðleikum. Það er aftur á móti meira rætt um áreksturinn við Loris Karius en mörkin þrjú sem við skoruðum í leiknum,“ sagði Marcelo.

„Við unnum Meistaradeildina og allir voru að kenna markverðinum um tapið. Greyið markvörðurinn þurfti að taka alla sökina fyrir allt liðið,“ sagði Marcelo hálf hlæjandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×