Innlent

Hraðasekt upp á 210 þúsund krónur

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Þriðjungur þeirra ökumanna sem stöðvaðir voru fyrir hraðakstur óku á 140 km/klst eða hraðar.
Þriðjungur þeirra ökumanna sem stöðvaðir voru fyrir hraðakstur óku á 140 km/klst eða hraðar. Vísir/Eyþór
Lögreglan á Suðurnesjum hefur á undanförnum dögum kært á þriðja tug ökumanna fyrir of hraðan akstur. Sá sem hraðast ók mældist á 148 km hraða og hraðasektin nemur  210.000 krónum, auk sviptingar ökuleyfis í einn mánuð og 3 refsipunkta í ökuferilsskrá, að því er segir í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum.

Þriðjungur ökumannanna ók á 140 km hraða eða meira þar sem hámarkshraði er 90 km/klst. Þessir ökumenn þurfa því að greiða  150.000 króna eða meira í sekt.

Þá voru höfð afskipti af tveimur ökumönnum sem voru með alla hjólbarða neglda undir bifreiðum sínum og þarf hvor um sig að greiða 80.000 krónur í sekt.

Jafnframt voru fáeinir staðnir að því að tala í síma án handfrjáls búnaðar og þurfa þeir að greiða 40.000 krónur í sekt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×