Innlent

Meintur fíkniefnasali handtekinn eftir hópferð á salerni fyrir fatlaða

Birgir Olgeirsson skrifar
Meint kókaín, MDMA, kannabis og stinningarlyf fundust.
Meint kókaín, MDMA, kannabis og stinningarlyf fundust. Vísir/Vilhelm
Lögreglan á Suðurnesjum handtók nýverið meintan fíkniefnasala sem staddur var á dansleik í umdæminu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni en þar segir að það vakti grun lögreglumanna þegar þrír karlmenn fóru saman inn á salerni fyrir fatlaða. Þegar lögregla hugðist ræða við mennina kastaði einn þeirra pakkningu í ruslafötu. Pakkningin reyndist innihalda meint kókaín.

Þá var fengin heimild til að leita í bifreið annars af þremenningunum, sem var grunaður um sölu fíkniefna, og þar reyndist vera allnokkurt magn af meintu kókaíni, lítilræði af meintu MDMA og kannabis, svo og meint stinningarlyf. Maðurinn var handtekinn og færður til skýrslutöku á lögreglustöð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×