Innlent

Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar samþykkt

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, sagðist á Alþingi í dag vera ánægð með fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar til næstu fjögurra ára.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, sagðist á Alþingi í dag vera ánægð með fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar til næstu fjögurra ára. vísir/hanna
Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2019 til 2023 var samþykkt á Alþingi í dag. Já sögðu 31 þingmaður, nei sögðu 19, sjö greiddu ekki atkvæði, tveir voru með skráða fjarvist og fjórir voru fjarverandi.

Í umræðu um atkvæðagreiðslu um áætlunina gagnrýndu þingmenn stjórnarandstöðunnar áherslur ríkisstjórnarinnar en Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, sagði áætlunina þannig ekki standast neinar gæðakröfur.

„Engin sundurliðuð kostnaðaráætlun, illa skilgrein markmið, sama og engir mælikvarðar, spurningum ekki svarað, mjög takmörkuð umræða, aftur. Virðulegi forseti, við erum aftur að gefa afslátt af lýðræðislegri umræðu og umfjöllun um ríkisfjármálin. Er það ekki hlutverk þingsins að veita stjórnvöldum aðhald? Að sinna virku eftirliti með valdhöfum og hvernig þeir fara með gefin völd? Þessi fjármálaáætlun stenst engar gæðakröfur, ekki einu sinni þær sem við setjum sjálfum okkur í lögum um opinber fjármál. Píratar telja því ekki tækt að samþykkja þessa áætlun, leggja til að henni verði vísað aftur til ríkisstjórnarinnar og sitja hjá í annars ágætum hugmyndum um breytingartillögur,“ sagði þingmaðurinn

Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, hvatti stjórnarþingmenn til að samþykkja einhverjar af þeim breytingartillögum við áætlunina sem flokkur hans legði fram.

„Ólíkt stjórnarflokkunum sem leggjast algjörlega í duftið fyrir ráðherrum sínum og gera engar breytingar á 5000 milljarða króna fjármáláætlun sinni leggur Samfylkingin hér til tíu breytingartillögur. Þessar tillögur tryggja nauðsynlega fjármuni til Landspítalans, til skólanna, barnabóta, vaxtabóta, öryrkja og aldraðra svo eitthvað sé nefnt. Breytingatillögur Samfylkingarinnar eru að fullu fjármagnaðar með því að breyta fyrirhuguðum skattaáformu ríkisstjórnarinnar en tillögur stjórnarflokkanna gagnast aðallega ríkum karlmönnum og bönkum. Fyrr í vikunni var þessi ríkisstjórn tilbúinn að færa kvótagreifum og skattakóngum um þrjá milljarða með lækkuðum veiðileyfagjöldum. Ríkisstjórnin þurfti að bakka með það mál og því hljóta stjórnarþingmenn að geta samþykkt eitthvað af tillögum okkar sem renna til aukinnar velferðar. Ef ekki þarf þjóðin að sig þeirrar spurningar af hverju eiga útgerðarmenn stuðning ykkar allan en ekki aldraðir, öryrkjar eða barnafólk?“

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, svaraði fyrir áætlunina og kvaðst mjög ánægð með hana.

„Ég er mjög ánægð með þessa fjármálaáætlun sem hér liggur frammi því í henni er efnt það sem lofað var fyrir kosningar og blásið til sóknar. Sóknar í þeim málaflokkum sem varða þjóðina mestu, nefni ég að sjálfsögðu heilbrigðismálin, en líka í menntamálum sem hafa legið óbætt hjá garði, samgöngumálum, þar sem svo sannarlega er þörf á viðbótum, kjarabótum fyrir lífeyrisþega og ég hlýt að nefna líka umhverfis- og náttúruverndarmál sem fá nú aukið vægi í þessari fjármálaáætlun langt frá því sem við höfum áður séð,“ sagði Katrín.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×