Fótbolti

Mikið fjör í Leifsstöð er strákarnir voru kvaddir | Myndband

Tómas Þór Þórðarson í Leifsstöð. skrifar
Strákarnir fylgjast með myndbandi þar sem þeir voru kvaddir af vinum og vandamönnum.
Strákarnir fylgjast með myndbandi þar sem þeir voru kvaddir af vinum og vandamönnum. vísir/vilhelm
Strákarnir okkar eru komnir upp í flugvél og bíða átekta á Keflavíkurvelli en áætlað er að flugvélin fari í loftið eftir hálftíma þegar að þetta er skrifað.

Það var ekki mikil veislan sem beið strákanna þegar að þeir mættu fyrst í Leifsstöð en partíið byrjaði þegar að niður var komið þar sem að flugvélin beið.

Þar var búið að kalla út allt tiltækt lið til að kveðja strákana með pompi og prakt en að sjálfsögðu var sungið Ég er kominn heim og íslenska fánanum veifað í gríð og erg.

Hér að neðan má sjá stemninguna þegar að strákarnir komu á neðri hæðina í Leifsstöð og fengu alvöru kveðjuveislu.

Vísir verður með öflugt teymi í Rússlandi sem verður með ítarlegan fréttaflutning af íslenska liðinu á HM. Fylgist með á samfélagsmiðlum okkar - á Facebook, Twitter og Instagram.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×