Hestamannafélagið Sprettur Jakobína Agnes Valsdóttir skrifar 23. maí 2018 15:00 Hestamannafélagið Sprettur er öflug heild, félag sem varð til þegar hestamannafélögin Gustur í Kópavogi og Andvari í Garðabæ sameinuðust árið 2012. Úr varð eitt stærsta hestamannafélag landsins með 1.650 félagsmenn með aðstöðu á Kjóavöllum. Á Kjóavöllum er fólk í góðum tengslum við náttúruna á stóru landsvæði þar sem stærsta reiðhöll landsins er staðsett en hún er 4.000 fm2 að stærð. Stefnt er að stækkun reiðhallarinnar þannig að upphitunarsvæði verði til staðar, sem hægt verður að nýta undir reiðkennslu og fyrir hinn almennan reiðmann til þess að æfa sig og hestinn. Eins verði þar aðstaða fyrir barna- og unglingastarf.Mynd/Hestamannafélagið SpretturHestamennska er vaxandi grein bæði sem íþrótta-, tómstunda- og atvinnugrein, því er dýrmætt fyrir hestaiðkenndur að eiga svo öflugt félag eins og Sprett. Á Sprettssvæðinu vantar verulega uppá frágang frá Kópavogsbæ sem bæði varðar félagsmenn sem og nágranna svæðisins. Mikið vatn flæðir að höllinni og niður á aðalvöllinn eins og meðfylgjandi mynd frá því í mars sýnir og þegar frystir myndast ísing. Þetta er stórhættulegt fyrir börn sem fara út á ísinn og eiga það á hættu að ísinn gefi sig þannig að þau falli ofan í vatnið. Ekkert hefur verið gert til þess að koma í veg fyrir þessa slysagildru. Þetta er óásættanlegt og þarfnast úrbótar strax. Einnig þarf að bæta samgöngur þannig að börn og unglingar geti tekið strætó á svæðið. Lýsing í hesthúsabyggðinni er einnig ábótavant og getur skapast hætta fyrir ríðandi og gangandi fólk. Miðflokkurinn í Kópavogi ætlar að þrýsta á uppbyggingu framhaldsskóla í efri byggðum Kópavogs þar sem iðn-, tækni- og íþróttabrautir verði í boði, því er tilvalið að nýta aðstöðuna í Spretti fyrir hestabraut. Hestamennskan er íþrótt sem hefur mikið forvarnargildi líkt og aðrar íþróttir, einnig hentar hún bæði ungum sem öldnum þar sem allir í fjölskyldunni geta tekið þátt. Öll börn og unglingar ættu að eiga möguleika á að stunda hestamennsku og komast í kynni við hestinn óháð efnahag. Einnig er mikilvægt að börn með skerðingar fái sömu tækifæri. Miðflokkurinn í Kópavogi vill hlúa betur að öllum fyrrnefndum þáttum í samstarfi við Sprett. Sprettur hefur alla burði til þess að verða eitt glæsilegasta hestamannafélag landsins með öflugasta barna- og unglingastarfið sem getur boðið upp á fjölbreytta dagskrá innan- sem utanhúss. Þar fer fram reiðkennsla, sýningar, tamningar og útreiðar allann ársins hring. Miðflokkurinn í Kópavogi vill styðja við hestamannafélagið Sprett í uppbyggingu og rekstri til þess að standa vel að landsmóti sem fyrirhugað er á svæðinu árið 2022, en von er á tíu til tuttugu þúsund gestum. Töluverð vinna er eftir í undirbúning og að mörgu þarf að huga, einnig svo að svæðið uppfylli væntingar félagsmanna og nágranna félagsins til framtíðar. Við stefnum á glæsilegt og eftirminnilegt landsmót sem Sprettarar og Kópavogsbúar geta verið stoltir af.Höfundur skipar 2. sæti á framboðslista Miðflokksins í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 27.04.2024 Halldór Óbærileg léttúð VG Jakob Frímann Magnússon Skoðun Takk fyrir vettlingana! Hópur foreldra leikskólabarna í Reykjavík Skoðun Í átt að velsæld á nokkrum mínútum Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Er fyrirmyndarríkið Ísland í ruslflokki í sorpmálum? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Satt og logið Bryndís Schram Skoðun Er forsetaframbjóðendum umhugað um dýravernd? Árni Stefán Árnason Skoðun Hvað varð um samveruna? Hildur Gunnarsdóttir Skoðun Að hafa áhrif á nærumhverfi sitt Guðbrandur Einarsson Skoðun Þegar þú vilt miklu meira bákn Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Í átt að velsæld á nokkrum mínútum Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Er fyrirmyndarríkið Ísland í ruslflokki í sorpmálum? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Takk fyrir vettlingana! Hópur foreldra leikskólabarna í Reykjavík skrifar Skoðun Hvað varð um samveruna? Hildur Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Listir og velferð Kristín Valsdóttir skrifar Skoðun Er forsetaframbjóðendum umhugað um dýravernd? Árni Stefán Árnason skrifar Skoðun Þegar þú vilt miklu meira bákn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Óbærileg léttúð VG Jakob Frímann Magnússon skrifar Skoðun Að hafa áhrif á nærumhverfi sitt Guðbrandur Einarsson skrifar Skoðun Framtíð innri markaðarins Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Satt og logið Bryndís Schram skrifar Skoðun Alþjóðlegi leiðsöguhundadagurinn Sigþór U. Hallfreðsson skrifar Skoðun Framsókn leggst ekki í duftið Guðmundur Birkir Þorkelsson skrifar Skoðun Að dreyma um alheim góðvildar Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Að bjarga sex lífum á mínútu í hálfa öld Birna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar þú ert báknið Gabríel Ingimarsson skrifar Skoðun Svik við þjóðina Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Innivist er mikilvægasti þátturinn við hönnun íbúða! Ásta Logadóttir skrifar Skoðun Brautryðjandinn Baldur Þóra Björk Smith skrifar Skoðun Katrín og Gunnar? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Ótímabundin leyfi, ótímabundið náttúruníð Elvar Örn Friðriksson skrifar Skoðun Er soja að eyðileggja íslenska karlmennsku? Dögg Guðmundsdóttir,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Er stóraukin lýðræðisþátttaka ekki verðlaunaefni? Einar Freyr Elínarson skrifar Skoðun Árangur gegn verðbólgu Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir skrifar Skoðun Saman gegn ríkisofbeldi Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar er híbýlaauður? Anna María Bogadóttir skrifar Skoðun Áhugaverðir tímar kalla á áhugaverðan forseta Cody Alexander Skahan skrifar Skoðun Biskup í tengslum Guðrún Karls Helgudóttir skrifar Skoðun Guðrún biskup – til heilla fyrir okkur öll! Arndís Steinþórsdóttir,Glóey Helgudótir Finnsdóttir skrifar Skoðun Dýravelferðarmartröð af áður óþekktri stærð Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Er soja að eyðileggja íslenska karlmennsku? Dögg Guðmundsdóttir,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar
Skoðun Saman gegn ríkisofbeldi Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar
Skoðun Guðrún biskup – til heilla fyrir okkur öll! Arndís Steinþórsdóttir,Glóey Helgudótir Finnsdóttir skrifar