Juventus fagnaði sjöunda titlinum eftir jafntefli

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Juventus fagnar bikarmeistaratitlinum á miðvikudag.
Juventus fagnar bikarmeistaratitlinum á miðvikudag. vísir/getty
Juventus er Ítalíumeistari sjöunda árið í röð eftir markalaust jafntefli gegn Roma á útivelli í kvöld.

Fyrir næst síðustu umferðina munaði sex stigum á Juventus og Napólí í efstu sætunum tveimur. Juventus dugði því stig til þess að koma í veg fyrir að Napólí gæti stolið efsta sætinu og margfaldir meistararnir skiluðu því.





Þetta er í fyrsta skipti í sögunni sem sama liðið vinnur Ítalíumeistaratitilinn sjö ár í röð og tók Juventus tvennuna í heimalandinu líka því liðið varð bikarmeistari fyrr í vikunni. Þetta var fjórða árið í röð sem Juventus náði tvennunni á Ítalíu.









Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira